Sæl veriði,
Mér var að berast í hendur nýútkomin
bók um fiðrildi í Færeyjum. þar er
fjallað um 155 tegundir innlendra tegunda auk flækinga og
slæðinga, með myndum og grunnupplýsingum.
Snillingarnir Jens-Kjeld Jensen og Hans Eli Sivertsen tóku saman texta
og myndefni. Bókin er 207 blaðsíður í
hefðbundnu feltbólkabroti og gefin út af Föroya
Skúlabókagrunni.
Ég mæli eindregið með að allir hérlendir
fiðrildaáhugamenn verði sér úti um eintak af
þessari ágætu og fallegu bók.
Bestu kveðjur,
Erling Olafsson